
kl. 17:00-18:15
Fullveldi Íslands í 100 ár: Hugsjón og reynd
Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands, Sögufélag og Háskólinn í Reykjavík efna til fundaraðar í nóvember með yfirskriftinni Fullveldi Íslands í 100 ár: Hugsjón og reynd. Tilgangur fundanna er að taka til umræðu fullveldishugmyndina í íslenskum stjórnmálum, þýðingu fullveldis fyrir samfélagsþróun á Íslandi og spurninguna um hvort þrengt hafi verið að fullveldi Íslands á síðustu áratugum. Fundaröðin tengist útgáfu bókarinnar Frjálst og fullvalda ríki: Ísland 1918-2018 sem kemur út 8. nóvember. Sögufélag gefur bókina út í samstarfi við Afmælisnefnd aldarafmælis sjálfstæðis og fullveldis Íslands. Í henni eru 10 greinar eftir 13 höfunda, lögfræðinga, sagnfræðinga og stjórnmálafræðinga sem skoða fullveldið frá ólíkum fræðilegum sjónarhornum.
Fundirnir eru þrír og eru haldnir í Norræna húsinu. Þetta er síðasti fundurinn. Þátttakendur flytja stuttar framsögur og síðan eru almennar umræður.
26. nóvember Fullveldið í hættu?
Hefur fullveldi Íslands einhvern tíma verið verulega skert síðan 1918? Er hætta á að Ísland glati fullveldinu í hendur ESB? Hvaða áhrif hefur það á fullveldið ef hluti valdheimilda ríkisins er framseldur annað?
Þátttakendur: Silja Bára Ómarsdóttir dósent í stjórnmálafræði, Finnur Magnússon lögmaður og aðjúnkt í lögfræði, Kristrún Heimisdóttir lögfræðingur og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir alþingismaður.
Fundarstjóri: Guðmundur Magnússon, blaðamaður