
Frostaveturinn mikli - Sögunnar minnst
Örsýningin FROSTAVETURINN MIKLI 1918 í tengslum við 100 ára Fullveldisafmæli Íslands hefur tekið á sig allsvakalega mynd í safninu en þá gengu a.m.k 27 ÍSBIRNIR á land á Íslandi! Að mæta bjarndýri gat verið stórhættulegt eins og dæmi bónda eins á Eldjárnsstöðum á Langanesi, sýnir. Allt um það og meira til í Bókasafni Seltjarnarness.
Hvaðan skyldi þessi ísbjörn hafa komið og hvar er hann nú???
Bókasafn Seltjarnarness minnist atburða ársins 1918 í tilefni 100 ára afmælis fullveldis Íslands. Nú er það Frostaveturinn mikli 1918 og fyrri heimsstyrjöldin sem eru í brennidepli og höfum við stillt fram bókum og lesefni um atburðina.